top of page

Námskeið

Kennslan er byggð á fræðum Vimala Schneider McClure. Hún stofnaði alþjóðleg samtök og skóla í ungbarnanuddi, sem mennta leiðbeinendur í Bandaríkjunum og Evrópu. Ég kenni nuddstrokurnar á dúkku og foreldrar nudda börnin sín. 

 

IMG_3674.jpg
IMG_3850.MOV.jpg
Fróði maganudd.jpg

Námskeið í ungbarnanuddi  

  • Foreldrar læra að nudda barnið sitt.

  • Við hittumst vikulega, klukkustund í senn í fjórar vikur.

  • Æskilegur aldur barns er 1-8 mánaða. 

  • Námsgögn með góðum útskýringum.

  • Ungbarnanuddolía, sérmerkt með nafni barnsins.

  • Litlir hópar, afslappað og notalegt andrúmsloft.

  • Hægt að panta námskeið fyrir foreldra hópa á staðinn eða í heimahús, staður og stund er samningsatriði.

Börn sem eru nudduð reglulega eiga auðveldara með að losa loft, sofa betur og tengslamyndun eykst.

 

Rannsóknir sem gerðar hafa verið sýna að börn sem eru nudduð reglulega þyngjast og þroskast fyrr en önnur börn.

Að nudda barnið snýst um svo miklu meira en nuddstrokurnar sjálfar. Við lærum að hlusta á barnið og skynja betur þarfir þess í gegnum snertingu, slökun, augnsamband og rödd foreldra. Þannig byggjum við upp traust og virðingu. 

Ungbarnanudd námskeið - Fjögur skipti.

Innifalið eru námsgögn og ungbarnanudd olia með nafni barnsins.

 

Næsta námskeið hefst: 

Miðvikudaginn 8. mai kl.13.00 og verður næstu þrjá miðvikudaga þar á eftir á sama tíma.

Ef þessi dagur/tími hentar ekki hafðu þá samband við mig.

Námskeið fyrir þinn foreldra hóp - Fjögur skipti. 

Þú raðar saman hóp af 4 til 6 börnum. Hjá mér í Dugguvogi 10 eða heima hjá ykkur á stór Reykjavíkursvæðinu. Betra verð.

Einkakennsla - 2 skipti

Innfalið eru námsgögn og ungbarnanudd olia með nafni barnsins.

Tvær leiðir í boði:

Þið komið á stofuna til mín í Dugguvog 10 eða ég kem til ykkar á stór Reykjavíkursvæðið. 

 

Vinir saman, tvö börn og foreldrar - tvö skipti.

Innifalið eru námsgögn og ungbarnanudd olia með nöfnumi barnsins.

Fjarkennsla, einkatímar - tvö skipti. 

Við "hittumst" fyrir framan skjá á fyrirfram ákveðnum tíma. Þú færð námsgögn send í tölvupósti. Við finnum tíma sem hentar barninu best.

Fjarkennsla, vinir saman, en geta verið á sitthvorum staðnum, tvö börn - tvö skipti.

Við "hittumst" fyrir framan skjá á fyrirfram ákveðnum tíma. Þú færð námsgögn send í tölvupósti. Við finnum tíma sem hentar börnunum best.

Auk þess getur nuddið

  • Bætt svefn.

  • Aukið öryggistilfinningu.

  • Dregið úr magakrömpum, loftmyndun og hægðatregðu.

  • Aukið blóðflæði.

  • Styrkt ónæmiskerfið.

  • Myndað sterkari tengsl milli barns og þess sem nuddar.

  • Mæður sem þjást af þunglyndi eftir fæðingu geta haft mikið gagn af nuddinu.

Öll börn eru einstök, flest njóta þess frá fyrsta degi að láta nudda sig en önnur þarf að venja við. Þess vegna er mikilvægt að undirbúa barnið vel og nudda það heima helst daglega á meðan á námskeiðinu stendur. Í fyrsta tímanum læra foreldrar að nudda fætur og maga, í þeim næsta bringu og handleggi. Í þriðja tímanum andlit og bak og í þeim fjórða verða gerðar skemmtilegar æfingar.

 

Nudd er yndisleg aðferð fyrir ykkur til að tengjast enn betur. Njótið þess að nudda barnið ykkar, náið augnsambandi við það, talið við það og leikið. Ef að báðir foreldrar komast ekki á námskeið er um að gera að kenna makanum eða t.d. ömmu eða afa réttu handtökin þegar heim er komið.

 

Eldri systkini þurfa gjarnan á gæða tíma að halda með mömmu og pabba. Tilvalið er að nota sömu nuddstrokur á þau og litla barnið. Eldri börnum finnst oft spennandi og notalegt að fá að nudda litla barnið undir handleiðslu foreldra sinna.

Báðir foreldrar eru velkomnir á námskeiðið.

bottom of page